Viðmiðunargjaldskrá leikskóla 2021

Út er komin viðmiðunargjaldskrá vegna leikskóladvalar utan lögheimilissveitarfélags vegna skólaársins 2021/2022.

Viðmiðunargjaldið byggir á beinum kostnaði sveitarfélaga við rekstur almennra leikskóla sveitarfélaga, ásamt sameiginlegum liðum. Meðalkostnaður á landinu við hvert leikskólapláss, m.v. átta tíma vistun með fæði, er lagður til grundvallar gjaldskránni (miðað við 11 mánuði).

Gjaldskráin er stigskipt eftir aldri leikskólabarna og dvalarlengd. Gjaldskráin sýnir brúttótölur og frá þeim dragast leikskólagjöld sem sveitarfélög innheimta af foreldrum.


Nánar um viðmiðunarreglur vegna leikskóladvalar utan lögheimilissveitarfélags og gjaldskrá.