Skrifað undir kjarasamning við Eflingu stéttarfélag

Þann 17. maí sl. skrifaði samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga undir kjarasamning við Eflingu stéttarfélag.

Verði kjarasamningurinn samþykktur mun hann gilda frá 1. apríl 2023 til 31. mars 2024.

Samninganefnd sambandsins vill koma á framfæri þökkum til samninganefndar Eflingar stéttarfélags fyrir fagleg og vönduð vinnubrögð við kjarasamningsgerðina.

Nú fer í hönd kynning á og atkvæðagreiðsla um kjarasamninginn meðal félagsmanna Eflingar stéttarfélags. Niðurstaða atkvæðagreiðslu um samninginn mun liggja fyrir þann 9. júní 2023.