Vaktavinnufólk

Vinnuvikan fyrir fólk í vaktavinnu styttist úr 40 stundum í 36 virkar stundir á viku, fyrir fullt starf. Frekari stytting í allt að 32 stundir er möguleg og grundvallast á vægi vinnustunda.

Launamyndun vaktavinnufólks breytist og mun taka meira mið af vaktabyrði en áður. Vaktaálagsflokkum fjölgar og greiddur er sérstakur vaktahvati sem tekur mið af fjölda og fjölbreytileika vakta. Stór hluti vaktavinnufólks vinnur hlutastarf og eru breytingarnar til þess fallnar að auka möguleika vaktavinnufólks  til að vinna hærra starfshlutfall. Hefur það í för með sér hærri laun og ævitekjur.

Nánar á vef Betri vinnutíma