Þegar rætt er um opinberan húsnæðisstuðning er einkum átt við eftirfarandi fimm þætti:
- Stofnframlög ríkis og sveitarfélaga
- Húsnæðisbætur ríkisins
- Sérstakan húsnæðisstuðning sveitarfélaga
- Úthlutun á húsnæðisúrræðum
- Ráðgjöf
Með samkomulagi sem gert var á árinu 2016 og tók gildi 1. janúar 2017 hafa húsnæðisbætur (greiddar af ríkinu) og sérstakur (viðbótar)-húsnæðisstuðningur sveitarfélaga leyst af hólmi húsaleigubætur sem sveitarfélög sáu áður um að greiða.
Sérstökum húsnæðisstuðningi sveitarfélaga ætlað að lækka greiðslubyrði vegna húsnæðiskostnaðar hjá þeim sem ekki eru á annan hátt færir um að sjá sér fyrir húsnæði eða eru með íþyngjandi húsnæðiskostnað sökum:
- lágra tekna / lítilla eigna,
- þungrar framfærslubyrði og
- félagslegra aðstæðna.
Hér er einkum vísað til þeirra sem eru með hæst hlutfall á milli húsnæðiskostnaðar og ráðstöfunartekna. Almennt gildir að húsnæðisbótum og sérstökum viðbótarhúsnæðisstuðningi er ætlað að stuðla að því að húsnæðiskostnaður skjólstæðinga félagsþjónustunnar sé í samræmi við greiðslugetu viðkomandi einstaklinga/fjölskyldna og að jafnaði ekki umfram fjórðung tekna, eins og segir í markmiðsgrein laga um almennar íbúðir. Sækja þarf um stuðninginn hjá velferðar-/félagsþjónustu sveitarfélaganna.