„Reynslunni ríkari“ – málþing um skólamál 30. október 2023

Samband íslenskra sveitarfélaga, í samstarfi við mennta- og barnamálaráðuneyti, samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið og félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, bjóða til málþings um skólamál.

Í tilefni þess að 25 ár voru liðin frá yfirfærslu grunnskóla til sveitarfélaga árið 2021 stóð Samband íslenskra sveitarfélaga fyrir skólaþingi undir yfirskriftinni Farsælt skólastarf til framtíðar. Á þeim tímamótum undirrituðu þrír ráðherrar ásamt formanni stjórnar sambandsins viljayfirlýsingu um samstarf um framkvæmd úttektar á þróun skólastarfs og þjónustu við börn í því skyni að geta hagnýtt reynsluna frá yfirfærslu grunnskólans við innleiðingu nýrrar menntastefnu stjórnvalda til 2030, nýrra laga um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna og aðgerða í byggðaáætlun um skólaþjónustu, starfsþróun og þverfagleg landshlutateymi.

Nú liggja niðurstöður þeirra úttekta fyrir og gengst sambandið, ásamt ráðuneytum þeim sem aðild eiga að samstarfsyfirlýsingunni, fyrir málþingi um niðurstöður þeirra þann 30. október nk. á Hótel Hilton Reykjavík Nordica.

Þar verður fókus settur á þann lærdóm sem úttektaraðilar telja að draga megi af þessu stærsta yfirfærsluverkefni til þessa, af samskiptum ríkis og sveitarfélaga, af eftirfylgd með yfirfærslunni,  lærdóm  og reynslu sem hagnýta má til þess að bæta bæði aðferðafræði og samskipti ríkis og sveitarfélaga þegar kemur að innleiðingu stórra stjórnvaldsákvarðana eða samningaviðræðna um ný yfirfærsluverkefni.

Dagskráin verður birt hér þegar nær dregur en hún hefst kl. 9:30 og stendur til kl. 15:30.