Kynning á skýrslu kjaratölfræðinefndar

Miðvikudaginn 16. september 2020, kl. 11.00, kemur út fyrsta skýrsla kjaratölfræðinefndar, nýs samstarfsvettvangs um gerð og hagnýtingu tölfræðigagna um laun og efnahag.

Í nefndinni sitja fulltrúar heildarsamtaka á vinnumarkaði, ríkis og sveitarfélaga, auk fulltrúa forsætisráðuneytis, félagsmálaráðuneytis og Hagstofu Íslands.

Í skýrslunni er fjallað um kjarasamningslotuna sem hófst árið 2019, umfang kjarasamningagerðar, og þróun efnahagsmála og launa. Skýrslan er sú fyrsta í röð skýrslna, en gert er ráð fyrir að nefndin gefi framvegis út tvær á ári.

Starf nefndarinnar

Starf nefndarinnar hefur gengið vel og tekist hefur góð samstaða um þann grunn upplýsinga og tölfræðigagna sem settur er fram í skýrslunni. Það er von nefndarinnar að þessi grunnur nýtist hagaðilum vel og verður efnið gert aðgengilegt á nýjum vef kjaratölfræðinefndar. Þá verða nefndarmenn einnig til taks í framhaldinu til að kynna skýrsluna innan einstakra félaga, verði eftir því leitað.

Kynningin verður 16. september kl. 11:00

Kynningin næsta miðvikudag verður í formi fjarfundar en slóð á fundinn mun birtast á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga þegar nær dregur. Skýrslan mun birtast á vef Kjaratölfræðinefndar eftir fundinn.

Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráðherra mun ávarpa fundinn og Edda Rós Karlsdóttir, formaður kjaratölfræðinefndar, kynna skýrsluna og gera grein fyrir helstu atriðum hennar. Fundarstjórn verður í höndum Aðalsteins Leifssonar ríkissáttasemjara.