Helstu mál á vettvangi ESB árið 2022

Út er komið ritið Helstu mál á vettvangi ESB árið 2022. Í ritinu er að finna yfirlit yfir helstu mál á vettvangi ESB árið 2022 sem varða íslensk sveitarfélög.

Helstu mál á vettvangi ESB og EFTA 2022

Í ritinu er í fyrsta lagi að finna yfirlit á starfsáætlun framkvæmdastjórnar ESB fyrir árið 2022 með sérstakri áherslu á mál sem varða sveitarstjórnarstigið. Starfsáætlunin byggir á sex forgangsmálum sem ætlað er leggja línurnar fyrir fimm ára stefnumörkun Ursula von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar ESB:

  1. Grænn sáttmáli fyrir Evrópu
  2. Stafræn framtíð Evrópu
  3. Efnahagskerfi sem sinnir þörfum almennings
  4. Evrópsk gildi
  5. Lýðræði í Evrópu
  6. Áhrif Evrópu á heimsvísu

Í öðru lagi er fjallað um þær samstarfsáætlanir ESB sem Ísland er aðili að. Aðild Íslands veitir íslenskum aðilum og þar með talin sveitarfélögum rétt á að sækja um verkefnastyrki sem samstarfsáætlanirnar fjármagna. Í þessu felast fjölmörg tækifæri fyrir íslensk sveitarfélög og má í því tillit meðal annars nefna nefna LIFE, sem fjármagnar umhverfis- og loftslagsverlkefni og Digital Europe, sem fjármagnar verkefni tengd stafrænni þróun.

Í þriðja lagi er fjallað um málefni sveitarfélaga sem tengjast EES EFTA samstarfinu.