Árbók sveitarfélaga 2018 komin út

34. árgangur af Árbók sveitarfélaga er komin út. Árbókin hefur í gegnum tíðina verið afar vinsæl meðal sveitarstjórnarfólks sem og margra annarra er láta sig sveitarstjórnarmál varða. Bókin er þægileg til uppflettingar og samanburðarrannsókna enda má finna þar ýmis konar tölfræði úr rekstri og starfsemi sveitarfélaga.

34. árgangur af Árbók sveitarfélaga er komin út. Árbókin hefur í gegnum tíðina verið afar vinsæl meðal sveitarstjórnarfólks sem og margra annarra er láta sig sveitarstjórnarmál varða. Bókin er þægileg til uppflettingar og samanburðarrannsókna enda má finna þar ýmiskonar tölfræði úr rekstri og starfsemi sveitarfélaga.

Hag- og upplýsingasvið sambandsins hefur að venju haft umsjón með útgáfu bókarinnar. Jóhannes Á. Jóhannesson annaðist alla vinnslu talnaefnis úr ársreikningum og uppsetningu á töflum en Sigurður Á. Snævarr fór með ritstjórn bókarinnar.

Árbókin kostar 4.000 krónur með virðisaukaskatti, sem er sama verð og í fyrra, en unnt er að panta hana með því að hringja í 515 4900 eða senda tölvupóst á netfangið sigridur@samband.is.