Pælt í Pisa – Samstarf heimila og skóla

Pælt í PISA - Samstarf heimila og skóla er heiti sjötta fundar af sjö þar sem markmiðið er að kafa dýpra í niðurstöður PISA-rannsóknarinnar 2022. Fundurinn fer fram 21. mars kl. 15-16:30 í Stakkahlíð. Hægt er að fylgjast með fundinum á Zoom. 

Á þessum sjötta fundi verður rætt um samstarf heimila og skóla í tengslum við niðurstöður PISA 2022. 

Þorvar Hafsteinsson, formaður Heimilis og skóla og Kristín Jónsdóttir, dósent við Menntavísindasvið HÍ rýna í niðurstöður. Umræður verða í kjölfarið. Fundarstjóri og stjórnandi umræðna: Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands

Alls verða haldnir sjö fundir á vegum Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, Mennta- og barnamálaráðuneytis, Menntamálastofnun, Kennarasambands Íslands, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og skóla.

Verið öll velkomin meðan húsrúm leyfir. Fundunum verður streymt. Aðgangur ókeypis.