Pælt í Pisa – Menntakerfið og ójöfnuður

Pælt í PISA - Menntakerfið og ójöfnuður er heiti sjöunda og þar með síðasta fundar þessarar fundaraðar þar sem markmiðið er að kafa dýpra í niðurstöður PISA-rannsóknarinnar 2022. Fundurinn fer fram 4. apríl kl. 15-16:30 í Stakkahlíð. 

Á þessum sjöunda fundi verður menntakerfið og ójöfnuður rætt í tengslum við niðurstöður PISA 2022. 

David Reimer, prófessor við Menntavísindasvið og Félagsvísindasvið rýnir í niðurstöður. Nánari dagskrá verður kynnt þegar nær dregur. Umræður verða í kjölfarið.

Alls verða haldnir sjö fundir á vegum Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, Mennta- og barnamálaráðuneytis, Menntamálastofnun, Kennarasambands Íslands, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og skóla.

Verið öll velkomin meðan húsrúm leyfir. Fundunum verður streymt. Aðgangur ókeypis.