Skör ofar – Framtíðarlausn til meðhöndlunar brennanlegs úrgangs í stað urðunar

Mynd: Lisa frá Pexels

Miðvikudaginn 25. ágúst kl. 12:00-13:00 efndi Samband íslenskra sveitarfélaga og stýrihópur um hátæknibrennslu úrgangs til kynningarfundar á Teams. Unnið er að því að innleiða hringrásarhagkerfi á Íslandi og að ná settum markmiðum um aukna endurvinnslu. Þrátt fyrir að það takist má búast við að ávallt falli til einhver úrgangur sem hvorki er hæfur til endurnotkunar né endurvinnslu.

Umhverfislegur ávinningur er af því að brenna þennan úrgang og nýta orkuna í stað þess að urða hann því urðun eða brennsla úrgangs án orkunýtingar er síðasti valkostur úrgangsþríhyrningsins. Brennsla úrgangs með orkunýtingu er þar að auki betri meðhöndlunarleið fyrir úrgang út frá sjónarhóli loftslagsmála en urðun.

Á fundinum var farið yfir framvindu forverkefnis sem styrkt er af umhverfis-  og auðlindaráðuneytinu um innleiðingu nýrrar framtíðarlausnar til meðhöndlunar á brennanlegum úrgangi í stað urðunar.

1. Tilgangur og markmið forverkefnis
Jón Viggó Gunnarsson
2. Verkáætlun og sérfræðingar sem koma að verkefninu
Helgi Þór Ingason
3. Umræður, spurningar og svör
4. Lokaorð
Guðjón Bragason fundarstjóri