Byggjum grænni framtíð

Kynningarfundur um samstarfsverkefni stjórnvalda og hagaðila byggingariðnaðarins um vistvænni mannvirkjagerð. Verkefnið heitir Byggjum grænni framtíð og á rætur sínar að rekja til aðgerðar C.3 í aðgerðaráætlun stjórnvalda í loftslagsmálum.

Viðfangsefnið felst í að afla upplýsinga um losun mannvirkjagerðar á viðmiðunarári (2018), setja markmið um að minnka þá losun til 2030 og skilgreina aðgerðir svo það takist. Síðar á þessu ári verða niðurstöðurnar gefnar út í sérstöku skjali; Vegvísi að vistvænum mannvirkjum 2030.

Á kynningarfundi verkefnisins þann 18. febrúar n.k. verður fjallað nánar um þetta spennandi og brýna verkefni, auk þess sem fulltrúar þriggja ólíkra hagaðila fjalla um tækifæri, áskoranir og ávinning varðandi vistvænni mannvirkjagerð út frá þeirra sjónarhorni.

Fundurinn verður á Teams og hefst stundvíslega kl. 09:00

Teams-hlekkur á fundinn

Dagskrá fundarins

Byggjum grænni framtíð; Vegvísir að vistvænni mannvirkjagerð 2030
Þóra Margrét Þorgeirsdóttir, HMS, verkefnastjóri Byggjum grænni framtíð
Byggjum grænni framtíð; mælingar og markmið
Sigríður Ósk Bjarnadóttir, VSÓ/HÍ, hópstjóri í hópi 6, mælingar
Byggingarverktakar byggja grænni framtíð: Tækifæri, áskoranir, ávinningur
Gylfi Gíslason, framkvæmdastjóri Jáverks
Sveitarfélög byggja grænni framtíð: Tækifæri, áskoranir ávinningur
Aldís Hafsteinsdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga
Fjármálastofnanir byggja grænni framtíð: Tækifæri, áskoranir ávinningur
Brynjólfur Bjarnason, viðskiptastjóri hjá Íslandsbanka
Spurt og svarað í lok fundar

Fundarstjóri: Lárus M. K. Ólafsson, Samtökum iðnaðarins