Viltu starfa í fjölbreyttu og lifandi umhverfi?

Samband íslenskra sveitarfélaga leitar að öflugum og jákvæðum einstakling í starf þjónustufulltrúa á þjónustusvið. Í boði er fjölbreytt, áhugavert og lifandi starfsumhverfi þar sem reynir á framúrskarandi samskiptahæfni, ríka þjónustulund og fagmennsku.

Þjónustufulltrúi starfar að margþættum og síbreytilegum verkefnum, bæði sjálfstætt og með öðru starfsfólki Sambandsins, sem varða starfsemi sveitarfélaga ásamt því að sinna hefðbundnum skrifstofustörfum.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Skipulagning og undirbúningur fyrir fundi, viðburði og ráðstefnur  
  • Þátttaka í fundum, fundarritun og halda utan um fundargerðir  
  • Vinna með verkefnahópum, nefndum og stjórnum 
  • Samskipti við hagaðila  
  • Þátttaka í verkefnum á sviðinu 
  • Svara fyrirspurnum í þjónustugátt 
  • Ýmis önnur tilfallandi verkefni í samráði við stjórnendur 

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun sem nýtist í starfi 
  • Reynsla af sambærilegu starfi  
  • Framúrskarandi skipulagshæfni
  • Rík samskiptahæfni, þjónustulund, frumkvæði og samviskusemi. 
  • Nákvæm og áreiðanleg vinnubrögð 
  • Mjög gott vald á talaðri og ritaðri íslensku og ensku 
  • Mjög góð tölvukunnátta er skilyrði 

Fríðindi í starfi

Nokkur dæmi um kosti þess að vinna hjá Sambandinu:  

  • Sambandið er framsækinn og skemmtilegur vinnustaður  
  • Þátttaka í teymi sérfræðinga sem saman vinnur að eflingu íslenskra sveitarfélaga 
  • Boðið er upp á opið vinnuumhverfi 
  • Hér starfar samheldinn hóp og starfsfólki fær gott svigrúm til starfsþróunar.  
  • Ekki skemmir fyrir að sambandið er heilsueflandi vinnustaður sem leggur áherslu á fjölskylduvænt umhverfi, boðið er upp á heilsustyrk  
  • Jafnræðis skal gætt í hvívetna við ráðningu og leitast er við að mannauður sambandsins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins

Frekari upplýsingar um starfið  

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Um er að ræða framtíðarstarf.  

Nánari upplýsingar veitir Drífa Sigurðardóttir, netfang: drifa.att@samband.is, eða Valur Rafn Halldórsson sviðsstjóri þjónustusviðs, netfang: valur@samband.is eða í síma 515-4900.  

Sótt er um starfið á alfred.is en um er að ræða fullt starf. Umsóknarfrestur er til og með 25. mars.  

 Ef þetta heillar þá viljum við heyra í þér!