Viljayfirlýsing um fagháskólanám í leikskólafræðum undirritað

Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, auk háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, mennta- og barnamálaráðherra, og félags- og vinnumarkaðsráðherra, undirrituðu í dag samstarfsyfirlýsingu um þróun og innleiðingu fagháskólanáms í leikskólafræðum á landsvísu.

Auk framangreindra koma Háskóli Íslands og Háskólinn á Akureyri að yfirlýsingunni, en markmið hennar er að efla menntun starfsfólks leikskóla um land allt.

Í frétt á vef stjórnarráðsins segir að verkefnið sé liður í að uppfylla forgangsverkefni í stjórnarsáttmála um menntamál, en hefur auk þess beina skírskotun til fyrstu aðgerðaáætlunar menntastefnu til 2030, aðgerðar A.13 í stefnumótandi byggðaáætlun auk tillagna starfshóps um eflingu leikskólastigins frá 2021.

Verkefninu er ætlað að gera starfsfólki leikskóla sem ekki hefur lokið stúdentsprófi kleift að sækja fagháskólanám sem er að fullu metið inn í fimm ára leikskólakennaranám. Háskóli Íslands þróar og skipuleggur fagháskólanám í leikskólafræðum og mun Menntavísindasvið skólans bera ábyrgð á framkvæmd verkefnisins. Nemendum stendur til boða að fá stuðning við ástund námsins frá starfsfólki háskólans, fræðslustofnunum í heimabyggð og viðkomandi sveitarfélagi. Verkefnið er þarft enda vantar um 1.500 leikskólakennara til starfa á Íslandi, en hér á landi er lægsta hlutfall menntaðra leikskólakennara meðal OECD-ríkja.

Nám samhliða starfi í leikskólum

Verkefnið um fagháskólanám í leikskólafræðum hófst formlega árið 2018 með samvinnu Menntavísindasviðs HÍ, Háskólafélags Suðurlands, Félags leikskólakennara, Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins og fleiri hagaðila sem hluti af átaki stjórnvalda til að efla tengsl háskóla og atvinnulífs. Þann vetur var boðið upp á námið fyrir starfsfólk leikskóla á Suðurlandi og síðar tóku Menntavísindasvið HÍ og Keilir saman höndum um að bjóða upp á námið bæði á Suðurnesjum og Suðurlandi. Nú hafa tveir hópar lokið náminu, einn í Árborg og annar á Suðurnesjum, með góðum árangri.

Stuðningur í heimabyggð mikilvægur

Reynsla af fagháskólanámi í leikskólafræðum sýnir að stuðningur í heimabyggð leikur lykilhlutverk í að nemendur fái svigrúm til að sækja nám að hluta til á vinnutíma. Þá er einnig mikilvægt að fræðslustofnun í heimabyggð skipuleggi stuðning í nærumhverfi, t.a.m. aðstöðu, tæknilegan stuðning og náms- og starfsráðgjöf.

Áætlað er að skráning í námið hefjist vorið 2023 og að síðan verði nýir hópar teknir inn annað hvert ár. Stefnt er að því að árið 2025 brautskráist allt að 100 nemendur, sem flestir myndu halda áfram í leikskólakennaranámi að fagháskólanámi loknu.

Myndin með fréttinni er tekin af vef stjórnarráðsins.