Vefráðstefna um stafræna umbreytingu

Vefráðstefna sveitarfélaga um stafræna umbreytingu fer fram miðvikudaginn 29. september n.k. frá 09:00-12:30

Rasmus Frey, framkvæmdastjóri OS2.

Á vefráðstefnunni verður sagt frá verkefnum sem sveitarfélögin vilja vinna að í samvinnu í framhaldi könnunar þess efnis sem framkvæmd var í sumar. Verkefnatillögurnar hafa nú verið metnar frekar og áhugavert verður að heyra að hvaða verkefnum verður unnið í samstarfinu árið 2022. 

Kynnt verður hvernig umsókn um fjárhagsaðstoð á Ísland.is mun virka fyrir sveitarfélög og umsækjendur, og hvernig tæknileg högun verður gagnvart sveitarfélögum. 

Rasmus Frey framkvæmdastjóri OS2, samstarfsvettvangs sveitarfélaga í Danmörku mun segja frá  hvernig dönsk sveitarfélög hafa deilt smærri opnum lausnum (e. open source) sín á milli og aukið hraða og styrk sveitarfélaga í stafrænni umbreytingu. Rasmus hefur undanfarin 19 ár unnið að þróun og hönnun á stafrænum vörum og lausnum auk stjórnunar og viðskiptaþróunar. Nú er hann, sem fyrr segir, framkvæmdastjóri hjá opinberum aðila sem leggur áherslu á sameiginlega nýsköpunar þróun í opnum kóða.

Sveitarfélög munu einnig segja frá því hvernig þau hafa nýtt sér samstarfið til að hraða stafrænni umbreytingu sinni. Kynnt verður nýtt lausnatorg á stafraen.sveitarfelog.is og hvernig stafrænt þróunarteymi sambandsins ætlar sér að vinna á næsta ári með sveitarfélögum.