Tilnefningar til viðurkenninga Öldrunarráðs Íslands

Árlega veitir Öldrunarráð Íslands viðurkenningu til einstaklinga, stofnunar eða félagasamtaka sem þykja hafa unnið einstakt starf tengt málefnum aldraðra.

Öldrunarráð Íslands veitir jafnframt viðurkenningu til fyrirtækja eða stofnana sem hafa myndað sér framúrskarandi stefnu varðandi starfslok starfsmanna og framfylgja henni á ábyrgan máta.

Öldrunarráð Íslands óskar eftir tilnefningum til viðurkenningar ráðsins. Öllum er heimilt að senda inn tilnefningar.

Frestur til að senda inn tilnefningar er til og með 4. október 2020 og skulu tilnefningar sendar með tölvupósti á oldrunarrad@oldrunarrad.is