Samstarfsyfirlýsing um menntun fyrir alla endurnýjuð

Samstarfsyfirlýsing um menntun fyrir alla á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi, sem undirrituð var á síðasta ári, hefur verið endurnýjuð af samstarfsaðilum. Yfirlýsingunni fylgir skuldbinding um að styðja við langtímaþróun menntastefnu hér á landi um menntun fyrir alla. Til grundvallar samstarfinu liggur aðgerðaáætlun sem byggir á tillögum úr úttektarskýrslu Evrópumiðstöðvar um nám án aðgreiningar og sérþarfir frá árinu 2017.

Yfirlýsing um menntun fyrir alla á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi hefur verið endurnýjuð af samstarfsaðilum. Yfirlýsingunni fylgir skuldbinding um að styðja við langtímaþróun menntastefnu hér á landi um menntun fyrir alla.

Til grundvallar samstarfinu liggur aðgerðaáætlun sem byggir á tillögum úr úttektarskýrslu Evrópumiðstöðvar um nám án aðgreiningar og sérþarfir frá árinu 2017.

Á undanförnum árum hefur átt sér stað víðtækt samstarf ríkis og sveitarfélaga og annarra hagsmunaaðila skólasamfélagsins um greiningu á framkvæmd stefnu um menntun fyrir alla/menntun án aðgreiningar á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi á Íslandi.

Samstarfið byggir á viljayfirlýsingu lykilaðila um að ráðast í úttekt á menntakerfinu og var Evrópumiðstöð um nám án aðgreiningar og sérþarfir (e. European Agency for Special Needs and Inclusion) fengin til verksins á árinu 2015. Við kynningu á niðurstöðum úttektarinnar 2. mars 2017 undirrituðu sömu aðilar yfirlýsingu um samstarf við eftirfylgni úttektarinnar með það að markmiði að styðja við langtímaþróun menntastefnu á Íslandi.

Mennta- og menningarmálaráðherra telur tímabært að endurnýja slíka samstarfsyfirlýsingu, með það að leiðarljósi að nýta niðurstöður úttektarinnar til að efla menntun fyrir alla. Einnig telur ráðherra mikilvægt að í þann hóp bætist ráðherra samgöngu- og sveitarstjórnarmála vegna þeirra málefna sem heyra þar undir ásamt fulltrúa kennaramenntunar.

Undirritun fór fram í ráðherrabústaðnum 13. apríl sl. og tók þar þátt fyrir hönd Sambands íslenskra sveitarfélaga, Karl Björnsson, framkvæmdastjóri.

Eftirtaldir staðfestu yfirlýsinguna af hálfu annarra samstarfsaðila: Lilja Alfreðsdóttir fyrir hönd mennta- og menningarmálaráðuneytis, Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra og Þór Þórarinsson f.h. félags- og jafnréttismálaráðherra af hálfu velferðarráðuneytis, Sigurður Ingi Jóhannsson, fyrir hönd samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis, Anna María Gunnarsdóttir fyrir hönd Kennarasambands Íslands, Jón Atli Benediktsson, rektor fyrir hönd Háskóla Íslands, Olga Lísa Garðarsdóttir fyrir hönd Skólameistarafélags Íslands og Sigrún Edda Eðvarðsdóttir vegna heimilis og skóla.

Nálgast má samstarfsyfirlýsinguna ásamt tillögum stýrihóps um fyrstu aðgerðir frá 30. júní 2017 á rekli hér að neðan.

Samstarfsyfirlysing-um-menntun-fyrir-allaÍ ráðherrabústaðnum að undirritun lokinni (f.v.) Jón Atli Benediktsson, Anna María Gunnarsdóttir, Karl Björnsson, Sigurður Ingi Jóhannsson, Lilja Alfreðsdóttir, Svandís Svavarsdóttir, Þór Þórarinsson, Sigrún Edda Eðvarðsdóttir og Olga Lísa Garðarsdóttir.