Samið við slökkviliðsstjóra

Slökkviliðsstjórar og aðrir stjórnendur slökkviliða undirrituðu sinn fyrsta kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga þann 29. júní sl. og var hann samþykktur í rafrænni kosningu sem lauk 25 ágúst.

Kosningarétt höfðu félagsmenn LSS sem sinna stöðugildum stjórnenda slökkviliða og greiða iðgjald sem nemur 20% starfshlutfalli eða meira.

Kosningaþátttaka var 71,74%

Það kusu 33 aðilar um kjarasamninginn og niðurstaðan var eftirfarandi:

  • Já sögðu 31 eða 93,94%
  • Nei sögðu 2 eða 6,06%
  • Enginn sat hjá

Kjarasamningurinn var því samþykktur með 93,94% allra greiddra atkvæða.

Þetta er fyrsti samningurinn sem slökkviliðsstjórar gera fyrir sig en áður var einungis einn kjarasamningur sem  gilti fyrir alla félagsmenn sem unnu fyrir sveitarfélögin. Samningsaðilar voru sammála í síðustu kjarasamningaviðræðum að það væri óeðlilegt að undirmenn væru að semja um kjör sinna yfirmanna. Samhliða þessum kjarasamningi er búið að útfæra greiðslu vegna bakvakta sem hefur verið mikil óánægja með á meðal slökkviliðstjóra og búið að endurmeta störf þeirra hjá verkefnastofu Starfsmats, sem er stofnun sem mælir reynslu og menntun til launa. Þessi samningur hefur sama gildistíma og almenni kjarasamningurinn og gildir því til 30. september 2023.

Alls eru 31 slökkviliðsstjórar starfandi á landinu auk (31) annarra stjórnenda en sumir kjósa að vera í öðrum stéttarfélögum. Af þessum eru 11 slökkviliðsstjórar og 20 varaslökkviliðsstjórar í 50% starfi eða minna. Starfsstöðvar slökkviliða eru 75 víðs vegar um landið og alls sinna um 900 aðilar slökkvi-og björgunarþjónustu. Rúmlega helmingur þeirra eru í tímavinnu og koma þegar kallið kemur en æfa með reglubundnum hætti.