Orka og matvælaframleiðsla

Orkufundur 2021, sem var frestað sl. vor, verður haldinn 14. janúar nk.

Frá Friðheimum - myndin er tekin af vefnum Think Geo Energy.

Orkufundur á vegum Samtaka orkusveitarfélaga sem stóð til að halda í maí á síðasta ári en var frestað  verður haldinn föstudaginn 14 janúar 2022. Yfirskrift fundarins er Orka og matvælaframleiðsla. Fundurinn verður á Teams og verða upptökur af fundinum aðgengilegar á vefsíðu Samtaka orkusveitarfélaga.

Nauðsynlegt er að skrá sig á fundinn en tengill á fundinn verður sendur til skráðra þátttakenda þegar nær dregur.

Dagskrá og skráning á Orkufund 2021