Opnir samráðsfundir um mannréttindi

Í kjölfar flutnings stjórnarmálefnisins mannréttinda frá dómsmálaráðuneyti til forsætisráðuneytis hefur forsætisráðherra ákveðið að hefja vinnu við grænbók um mannréttindi.

Lögð verður áhersla á víðtækt samráð við vinnu grænbókarinnar og því verða opnir samráðsfundir um landið um stöðu mannréttindamála. Á hverjum fundi verður kastljósi beint að mannréttindamálum á Íslandi, helstu áskorunum framundan og tækifærum með tilliti til áherslna stjórnvalda, sem m.a. endurspeglast í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar.

Öll eru velkomin en þátttakendur eru beðnir að skrá sig. Gott aðgengi er á öllum fundarstöðunum fyrir hjólastóla og táknmálstúlkun stendur til boða sé þess óskað með 7 daga fyrirvara.

DagsetningStaður TímiÞátttaka
29. ágústSelfoss | Hótel Selfoss 16:00-17:30Skráning
31. ágústReykjavík | Ríma í Hörpu 16:00-17:30Skráning
5. september Akureyri | Hamar í Menningarhúsinu Hofi 17:00-18:30 Skráning
6. septemberEgilsstaðir | Icelandair Hótel Hérað 17:00-18:30 Skráning
8. septemberÍsafjörður | Edinborgarhúsið 10:00-11:30Skráning

Grænbók um mannréttindi

Grænbók er yfirlit yfir stöðumat og valkosti og er undanfari frekari stefnumótunar. Við vinnuna verður lagt mat á stöðu mannréttindamála á Íslandi þar sem safnað er á einn stað upplýsingum um mannréttindi, þróun, tölfræði, samanburði við önnur lönd og samantekt um mismunandi leiðir eða áherslur til að mæta þeim áskorunum sem við blasa í mannréttindamálum, m.a. í tengslum við stofnun sjálfstæðrar innlendrar Mannréttindastofnunar.