Mennta- og barnamálaráðuneytið leggur fé til stuðnings sveitarfélaga þar sem börn á flótta eru búsett. Styrkurinn nær til allra barna sem fengið hafa alþjóðlega vernd eða dvalarleyfi af mannúðarástæðum frá 1. janúar 2021.
![](https://www.samband.is/wp-content/uploads/2022/10/barn-ad-vada-1024x649.jpg)
Markmiðið með fjárstuðningnum er að styðja við móttöku barna sem hafa neyðst til þess að flýja heimaland sitt vegna átaka.
Veittur er fjárstuðningur til verkefna sem snúa að
- stuðningi innan skóla og frístundastarfs,
- stuðningi við barnaverndarnefndir og önnur úrræði fyrir fjölskySdur á flótta.
Fjárstuðningurinn miðar við þann fjölda barna sem er með alþjóðlega vernd eða dvalarleyfi af mannúðarástæðum í hverju sveitarfélagi. Hægt er að sækja annars vegar um 125.000 kr. styrk vegna hvers barns sem er yngra en 6 ára og hins vegar 200.000 kr. styrk vegna barns sem er eldra en 6 ára.
- Umsókn á Eyðublaðavef Stjórnarráðsins undir Eyðublöð - Mennta- og barnamálaráðuneytið
- Form um fjölda barna eftir fæðingarári og ríkisfangi sem fylgja þar umsókn
Umsóknarfrestur er til og með 14. nóvember. Tekið skal fram að opnað verður fyrir umsóknir á ný í ágúst 2023 og þá geta sveitarfélög sótt um fyrir börn sem hafa flust til sveitarfélagsins eftir að fyrri umsókn var send til mennta- og barnamálaráðuneytisins.