Opið fyrir tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna

Samband íslenskra sveitarfélaga minnir á að tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna 2022 þurfa að berast fyrir 1. júní nk.

Markmið verðlaunanna er að auka veg menntaumbótastarfs og vekja athygli samfélagsins á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi með börnum og unglingum.

Verðlaunin eru veitt í fjórum flokkum

  • Framúrskarandi skóla- og frístundastarf eða menntaumbætur
  • Framúrskarandi kennari
  • Framúrskarandi iðn- og starfsmenntun
  • Framúrskarandi þróunarverkefni

Auk þess eru veitt sérstök hvatningarverðlaun.

Nánari upplýsingar um verðlaunin og tilnefningar.