Nýr gagnagrunnur um íslensk mannvirki

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið og félagsmálaráðuneytið hafa ákveðið að hefja uppbyggingu nýrrar mannvirkjaskrár, gagnagrunns um íslensk mannvirki og er gert ráð fyrir að gagnagrunnurinn verði kominn í gagnið 1. júní 2022

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið og félagsmálaráðuneytið hafa ákveðið að hefja uppbyggingu nýrrar mannvirkjaskrár, gagnagrunns um íslensk mannvirki og er gert ráð fyrir að gagnagrunnurinn verði kominn í gagnið 1. júní 2022 skv. frétt á vef Stjórnarráðs Íslands. Markmið verkefnisins er að tryggja samfélaginu á hverjum tíma áreiðanlegar rauntímaupplýsingar um mannvirkjagerð og stöðuna á húsnæðismarkaði.

Í frétt stjórnarráðsins kemur fram að „uppbygging og rekstur á nútímalegum gagnagrunni muni skila ábata inn í samfélagið með stórbættri þjónustu, lægri kostnaði og fleiri tækifærum til nýsköpunar. Stjórnvöld og aðrir hagaðilar eigi þannig kost á að bæta enn frekar áætlanagerð á sínum vegum og taka markvissar ákvarðanir byggðar á traustum upplýsingum úr rafrænum gagnasöfnum.“

Í grunninum verða nákvæm og áreiðanleg gögn um mannvirki á Íslandi og byggingastig þeirra. Það verður m.a. hægt að fylgjast með fjölda íbúða í byggingu eftir byggingarstigi. Upplýsingar um fasteigna- og brunabótamat verða einnig aðgengilegar, m.a. fyrir ytri vefþjónustu. Markmið er að lækka kostnað sveitarfélaga, fyrirtækja og stofnana sem nýta mannvirkjaskrána en auka á sama tíma þjónustu og leita tækifæra til frekari umbóta.

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun mun halda utan um nýju mannvirkjaskrána og þróa nýja gagnagrunninn í góðu samstarfi við aðila verkefnisins. Verkefnið verður unnið í nánu samstarfi ráðuneytanna, Þjóðskrár Íslands, Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Haghöfum verður auk þess boðið upp á samráð um þróun verkefnisins.

Nánari upplýsingart má finna á vef Stjórnarráðs Íslands.