Samninganefndir Sambands íslenskra sveitarfélaga og samninganefnd fjórtán bæjarstarfsmannafélaga innan BSRB undirrituðu rétt eftir miðnætti nýjan kjarasamning.
![](https://www.samband.is/wp-content/uploads/media/_ORIGINALS/samningurbsrb-850x600-c-default.jpg)
Samninganefndir Sambands íslenskra sveitarfélaga og samninganefnd fjórtán bæjarstarfsmannafélaga innan BSRB undirrituðu rétt eftir miðnætti nýjan kjarasamning.
Stéttarfélögin sem um ræðir eru:
- Kjölur, stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu,
- Sameyki, stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu,
- Félag opinberra starfsmanna á Austurlandi,
- Félag opinberra starfsmanna á Vestfjörðum,
- Starfsmannafélag Dala- og Snæfellsnessýslu,
- Starfsmannafélag Fjallabyggðar,
- Starfsmannafélag Fjarðabyggðar,
- Starfsmannafélag Húsavíkur
- Starfsmannafélag Vestmannaeyja,
- FOSS, stéttarfélag í almannaþjónustu,
- Starfsmannafélag Hafnarfjarðar,
- Starfsmannafélag Kópavogs,
- Starfamannafélag Mosfellsbæjar og
- Starfsmannafélag Suðurnesja
Kjarasamningurinn er gerður í anda Lífskjarasamningsins sem gildir á almennum vinnumarkaði. Verði samningurinn samþykktur mun hann gilda frá 1. janúar 2020 til 31. mars 2023.
Nú fer í hönd kynning á og atkvæðagreiðsla um kjarasamninginn meðal félagsmanna bæjarstarfsmannafélaganna.
Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar mun liggja fyrir þann 23. mars næstkomandi.
Samið við Sjúkraliðafélag Íslands
Samninganefndir Sambands íslenskra sveitarfélaga og Sjúkraliðafélags Íslands innan BSRB undirrituðu einnig í nótt nýjan kjarasamning við Sjúkraliðafélag Íslands vegna starfsmanna sem vinna hjá Akureyrarbæ. Þar með var verkfalli félagsins gagnvart Akureyrarbæ aflýst.
Kjarasamningurinn er gerður, eins og fyrri samningar, í anda Lífskjarasamningsins sem gildir á almennum vinnumarkaði. Verði samningurinn samþykktur mun hann gilda frá 1. janúar 2020 til 31. mars 2023.
Nú fer í hönd kynning á og atkvæðagreiðsla um kjarasamninginn meðal félagsmanna. Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar mun liggja fyrir þann 25. mars næstkomandi.