Ný rafræn námskeið um kynferðisfobeldi gagnvart börnum

Barna- og fjölskyldustofa hefur framleitt ný rafræn námskeið um kynferðisofbeldi gagnvart börnum. Þessi námskeið eru ætluð öllum þeim sem koma að starfi með börnum upp að 18 ára aldri. 

Í þessu námskeiði er farið yfir möguleg einkenni kynferðisofbeldis, tilkynningaskylduna, þau viðbrögð sem eru mikilvæg verði starfsfólk þess áskynja að barn sýni óeðlilega kynhegðun, ber einkenni þess sem hefur orðið fyrir ofbeldi eða sýni þess merki að það vilji segja frá. Einnig er farið yfir hvað þykir eðlileg kynferðisleg hegðun barna á ákveðnum aldri, hvaða hegðun veldur áhyggjum og hvenær ráðlegt er að kalla eftir áliti sérfræðings.

Nýju námskeiðin samanstanda af 6 námsþáttum en hver námsþáttur byggir á stuttum myndböndum, spurningum til umhugsunar og ítarefni. Námskeiðin eru aldurskipt og miðað er við að þátttakendur velji sér námskeið eftir því á hvaða aldri þau börn eru sem viðkomandi hefur helst afskipti af gegnum störf sín.

Þessi nýju námskeið heita: Kynferðisofbeldi og kynferðisleg hegðun barna og unglinga og þau er að finna í skóla Barna- og fjölskyldustofu (BOFS skólanum) á netinu en slóðin inn á hann er: https://bofs.teachable.com 

Forvarnafulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur sent hlekk á námskeiðið á tengiliði forvarnarteyma ofbeldis innan allra grunnskóla landsins, en teymin bera ábyrgð á því að fylgja því eftir að allt starfsfólk grunnskólanna ljúki námskeiðinu fyrir árslok 2025. Skólaskrifstofur sveitarfélaganna bera svo ábyrgð á því að halda utan um tölfræðiupplýsingar um fræðslu í sínu umdæmi og miðla upplýsingum um árangur til forvarnafulltrúa Sambands íslenskra sveitarfélaga. En skólaskrifstofur bera einnig ábyrgð á að miðla þekkingu og veita leik- og grunnskólum, ásamt frístundaheimilum og félagsmiðstöðvum, stuðning til að tryggja að forvarnir gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni verði samþættar skólastarfi, einkum í kennslu, og að starfsfólk hljóti fræðslu. Skólaskrifstofur skulu einnig tryggja að forvarnir gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni verði markviss þáttur í skólastefnu sveitarfélaga og í forvarnastefnu hvers skóla um sig.