Netnámskeið um einkenni barna sem hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi

Námskeiðið er í fjórum útgáfum með eftirfarandi markhópa í huga: 1) leikskóla, 2) yngri bekki grunnskóla ásamt frístundaheimilum, 3) eldri bekki grunnskóla ásamt félagsmiðstöðvum og 4) framhaldsskóla.

Sérfræðingar á vegum Barna- og fjölskyldustofu hafa útbúið gagnvirkt netnámskeið með grunnfræðslu um kynferðislegt og kynbundið ofbeldi og áreitni til þess að auka þekkingu starfsfólks og sjálfboðaliða sem starfa með börnum á birtingarmyndum afleiðinga kynferðisofbeldis hjá þeim og hvernig bregðast skuli við ef barn greinir frá ofbeldi.

Það er mikilvægt að öll þau sem vinna með börnum og ungmennum þekki einkenni barna sem hafa orðið fyrir hvers kyns kynferðisofbeldi og kunni að bregðast við með réttum hætti og minnka þannig líkur eru á því að ofbeldið eigi sér stað yfir lengri tíma eða afleiðingarnar hafi varanleg áhrif á líðan barnanna. Við vitum hve mikilvægt það er að öll sem starfa með börnum og ungmennum þekki einkenni kynferðisofbeldis hjá börnum og með því að bregðast hratt og örugglega við eru minni líkur á því að ofbeldið vari í lengri tíma eða að afleiðingar þess hafi varanleg áhrif á líðan barnanna. Það er mikilvægt að stjórnendur fylgi því eftir að allt starfsfólk þeirra taki og ljúki þessu námskeiði á hverju ári til að tryggja að starfsfólk viðhaldi þekkingu sinni. Þá verður námskeiðið einnig uppfært af sérfræðingum Barna- og fjölskyldustofu reglulega.

Námskeiðið er gefið út í fjórum útgáfum og geta þátttakendur því valið þá útgáfu sem hentar miðað við þann aldurshóp sem unnið er með hverju sinni. Það tekur undir klukkustund að taka hvert námskeið og hæglega hægt að taka það í nokkrum skrefum. Námskeiðið er hannað þannig að í lok þess fá þátttakendur viðurkenningarskjal. Barna- og fjölskyldustofa fær sjálfkrafa upplýsingar um heildarfjölda þeirra sem taka námskeiðið.

Netnámskeiðin eru afrakstur aðgerða í þingsályktun um forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni, ásamt áætlun um aðgerðir fyrir árin 2021–2025, þar sem megináherslan er lögð á að efla aldursmiðaða kennslu og forvarnir í leikskólum, grunnskólum og framhaldsskólum, í samvinnu við heilsugæslu, frístundaheimili og félagsmiðstöðvar. Hlutverk forvarnarfulltrúa Sambands íslenskra sveitarfélaga er að fylgja eftir aðgerðum þingsályktunarinnar og veita ábyrgðaraðilum aðgerðanna stuðning. Samband íslenskra sveitarfélaga fagnar birtingu námskeiðanna sem eru lykilþáttur í mörgum aðgerðum ályktunarinnar auk þess að vera mikilvægt framlag til forvarna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni meðal barna og ungmenna.

Nánari upplýsingar og hlekk á námskeiðin má finna á heimasíðu Barna- og fjölskyldustofu.