Nándarreglur í skólastarfi

Í auglýsingu heilbrigðisráðuneytisins, frá 12. ágúst sl., kemur fram að fullorðnir í starfi leik- og grunnskóla skuli halda minnst eins metra fjarlægð sín í milli í skólastarfi. Er það frávik frá tveggja metra reglunni sem er almennt í gildi í samfélaginu.

Nemendum og starfsfólki í framhalds- og háskólum ber að tryggja a.m.k. eins metra bil sín í milli í skólastarfi í stað tveggja metra reglunnar sem almennt er í gildi í samfélaginu, samkvæmt breytingum á sóttvarnarreglum sem kynntar voru í dag. Hið sama á við um fullorðna í starfi leik- og grunnskóla, þ.e. kennara og annað starfsfólk sem þurfa að halda minnst metra fjarlægð sín í milli í skólastarfi. Engin fjarlægðarmörk eru í gildi fyrir nemendur á leik- og grunnskólaaldri. Sjá nánar í frétt heilbrigðisráðuneytis.

Stjórnendur skóla þurfa eftir sem áður að tryggja að hámarksfjöldi fullorðinna einstaklinga í sama rými fari ekki yfir 100 auk þess sem starfsfólk og nemendur skólanna þurfa að fylgja almennum sóttvarnarreglum. Mikil áhersla er lögð á einstaklingsbundnar smitvarnir og hreinlæti. Sóttvarnarráðstafanir kalla í mörgum tilfellum á talsverða endurskipulagningu og lokun svæða, sem skólarnir útfæra miðað við aðstæður á hverjum stað.

Unnið er að uppfærðum leiðbeiningum um framkvæmd skólastarfs á öllum skólastigum í góðri samvinnu við sóttvarnaryfirvöld og framkvæmdaaðila og verður þeim miðlað á allra næstu dögum.