Leyfisbréf kennara verða aðgengileg í gegnum Ísland.is

Markmið vefsins Ísland.is er að bæta stafræna þjónustu við almenning og gera hana skýrari og hraðvirkari. Nú er unnið að því að einstaklingar geti nálgast upplýsingar um starfsleyfi sín í gegnum vefinn og þar ríða kennarar á vaðið.

Leyfisbréf, sem er staðfesting á réttindum til kennslu og til að bera starfsheitið kennari, eru aðgengileg með rafrænum skilríkjum á Mínum síðum á uppfærðum vef Ísland.is. Leyfisbréf sem gefin voru út fyrir 1. janúar 2020 munu bætast í gagnagrunninn á næstu misserum. Menntamálastofnun annast útgáfu leyfisbréfa til kennara og veitir nánari upplýsingar um þau. Nú er gefið út eitt leyfisbréf þvert á skólastig leik-, grunn- og framhaldsskóla.

Sömuleiðis er unnið að því að birta niðurstöður samræmdra könnunarprófa grunnskólanema á vef Ísland.is og er þar þegar að finna niðurstöður nemenda sem tóku prófin árin 2020 og 2021.

Vinna við gerð gagnagrunnsins hófst vorið 2020 og er liður í fjárfestingarátaki vegna þróunar stafrænnar þjónustu. Verkefnið er unnið í samstarfi Menntamálastofnunar, Stafræns Íslands og háskólanna.

Nánar á vef stjórnarráðsins.