Kynning á fyrstu vatnaáætlun Íslands 2022-2027

Umhverfisstofnun hefur lagt fram til kynningar tillögu að fyrstu vatnaáætlun fyrir Ísland sem felur í sér stefnumörkun um vatnsvernd. Hluti af vatnaáætlun er aðgerðaáætlun þar sem settar eru fram aðgerðir til að tryggja gott ástand vatns og vöktunaráætlun þar sem markmiðið er m.a. að samræma vöktun á vatni um allt land.

Samráð og samtal hefur farið fram við gerð vatnaáætlunar en nú hefst formlegt opið kynningarferli sem stendur yfir næstu sex mánuðina.

Frekari upplýsingar um vatnaáætlun eru inni á vefsíðunni www.vatn.is

Ábendingar og athugasemdir skal senda á ust@ust.is merkt „Stjórn vatnamála“ eða til Umhverfisstofnunar, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík. Tillögurnar eru kynntar á vefnum vatn.is en einnig liggja þær frammi á skrifstofu Umhverfisstofnunar.

Frestur til að senda inn ábendingar og athugasemdir eru sex mánuðir eða til og með 15. júní 2021. 

Áætlanirnar má sjá hér: