Úrslit í allsherjaratkvæðagreiðslu Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum um nýjan kjarasamning við samninganefnd sveitarfélaga liggja fyrir.
Úrslit liggja fyrir í allsherjaratkvæðagreiðslu Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum um kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga.
Á kjörskrá voru 484 félagsmenn og greiddu af þeim 240 atkvæði eða 49,6% félagsmanna. Var samningurinn samþykktur með miklum meirihluta atkvæða:
- Já sögðu 87,92%
- Nei sögðu 10,00%
- Auðir seðlar 2,08%
Samningstími er frá 1. apríl 2018 til 31. mars 2019.