Kallað eftir nemendaverkefnum fyrir Varðliða umhverfisins

Á vef Stjórnarráðsins hefur verið vakin athygli á því að verkefnasamkeppni grunnskólabarna í 5. til 10 bekk, Varðliðar umhverfisins,er nú hafin í 14. sinn. Samkeppninni er ætlað að hvetja börn og unglinga til góðra verka í umhverfisvernd, vekja athygli á sýn þeirra á umhverfismál og kalla eftir leiðsögn yngri kynslóðarinnar á því sviði.

Á vef Stjórnarráðsins hefur verið vakin athygli á því að verkefnasamkeppni grunnskólabarna í 5. til 10 bekk, Varðliðar umhverfisins,er nú hafin í 14. sinn. Samkeppninni er ætlað að hvetja börn og unglinga til góðra verka í umhverfisvernd, vekja athygli á sýn þeirra á umhverfismál og kalla eftir leiðsögn yngri kynslóðarinnar á því sviði. Skilafrestur verkefna er 3. apríl 2020.

Verkefnin mega vera allskonar

Verkefnin mega vera af fjölbreyttum toga, t.d. ljósmyndir, kannanir, samvinnuverkefni, ritgerðir, textílverkefni, ljóð, veggspjöld, bæklingar, vefverkefni, leikrit, myndbönd og hljóðverk og svo mætti lengi telja. Hægt er að setja þau fram á hvaða formi sem er – hér er um að gera að virkja sköpunargleðina. Lögð er áhersla á að frumkvæði nemenda sé sýnilegt bæði við undirbúning og úrvinnslu verkefnanna og mikilvægt er að gögn séu unnin af nemendum sjálfum.

Verkefnin geta tekið fyrir umhverfismál í víðum skilningi og er áhersla á að þau hafi góða tengingu við nám nemenda og þverfaglegt skólastarf. Þá styrkir það verkefnin ef þau leitast við að hafa jákvæð áhrif á hegðun fólks og viðhorf samfélagsins til umhverfisins, hvort heldur er innan skólans eða utan.

Að keppninni standa umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Landvernd og Miðstöð útivistar og útináms. Sem fyrr segir er skilafrestur verkefna til 3. apríl 2020 og skal senda þau á netfangið postur@uar.is eða í bréfpósti á umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Skuggasundi 1, 101 Reykjavík, merkt ,,Varðliðar umhverfisins”.

Frekari upplýsingar veitir Bergþóra Njála Guðmundsdóttir.