Alls bárust 62 mismunandi hugmyndir að hugmynd á nýtt sameinað sveitarfélag Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar.
Alls bárust 62 mismunandi hugmyndir að hugmynd á nýtt sameinað sveitarfélag Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar. Nafnanefnd hins sameinaða sveitarfélags fundaði 10. febrúar og fór yfir hugmyndirnar. Nefndin hittist aftur í dag 14. febrúar og tekur þá ákvörðun um hvaða tillögur fara til umsagnar Örnefnanefndar, sem hefur allt að þrjár vikur til að veita umsagnir. Að umsagnarfresti Örnefnanefndar liðnum kemur nafnanefndin saman að nýju og gerir tillögu til Undirbúningsstjórnar um hvaða nöfn verða lögð fyrir kjósendur í atkvæðagreiðslu 18. apríl. Kosningin er ekki bindandi.
Ný sveitarstjórn ákveður heitið að afloknum kosningum. Hugmyndirnar eru eftirfarandi:
1. Álfabyggð | 22. Egilsstaðahreppur | 43. Múlaþinghá |
2. Arðbær | 23. Eystribyggð | 44. Mýlingaþinghá |
3. Austan Kreppu | 24. Eystraþing | 45. Sambyggð |
4. Austri | 25. Eystriþinghá | 46. Sameinuðu austfirsku furstadæmin |
5. Austur-kaupstaðarþing | 26. Fagrabyggð | 47. Skógargerði |
6. Austurbær | 27. Fjarðarsel | 48. Stóraþinghá |
7. Austurbyggð | 28. Fljóseydjúpborg | 49. Sveitarfélagið Austri |
8. Austurhérað | 29. Fljótabyggð | 50. Sveitarfélagið Austur |
9. Austurland | 30. Fljótsfjarðarhreppur | 51. Sveitarfélagið Austurland |
10. Austurríki | 31. Frábær | 52. Sveitarfélagið Austurvegur |
11. Austurþing | 32. Grautarbyggð | 53. Sveitarfélagið Brú |
12. Austurþinghá | 33. Héraðsbyggð | 54. Sveitarfélagið Búland |
13. Blikabyggð | 34. Hreppur rísandi sólar (eða Hreppur hinnar rísandi sólar) | 55. Sveitarfélagið Fljótsdalshérað |
14. Búlandsbær | 35. Lagarbyggð | 56. Sveitarfélagið Glettingur |
15. Búlandsbyggð | 36. Lagarfljótsfjarðarþing | 57. Sveitarfélagið Héraðsfirðir |
16. Búlandshérað | 37. Lagarfljótshreppur | 58. Sveitarfélagið Lagarþing |
17. Drekabæli | 38. Múlaborg | 59. Sveitarfélagið Múlaþing |
18. Drekabyggð | 39. Múlabyggð | 60. Sveitarfélagið Seiðandi |
19. Drekaland | 40. Múlabyggðir | 61. Sveitarfélagið Tindar |
20. Dyrfjallabyggð | 41. Múlahreppur | 62. Vættabyggð |
21. Egilsfjarðabyggð | 42. Múlaþing |
Fjallað er um heiti sveitarfélaga í 5. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 en greinin er svohljóðandi:
5. gr. Heiti sveitarfélags.
Sveitarstjórn ákveður heiti sveitarfélags að fenginni umsögn örnefnanefndar. Skal það samrýmast íslenskri málfræði og málvenju. Ef könnun er gerð meðal íbúa á viðhorfi til breytingar á nafni sveitarfélags eða á nafni nýs sveitarfélags skal leita umsagnar örnefnanefndar um þau nöfn sem um ræðir.
Ekki má breyta nafni sveitarfélags eða gefa nýju sveitarfélagi nafn nema með staðfestingu ráðuneytisins. Þegar nýtt heiti sveitarfélags hefur verið ákveðið skal samþykkt um stjórn sveitarfélagsins, sbr. 9. gr., breytt til samræmis og tekur nýtt heiti gildi við gildistöku hennar.