Grunnskólakennarar og Samband íslenskra sveitarfélaga skrifa undir kjarasamning

Félag grunnskólakennara og samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga skrifuðu síðdegis í gær undir nýjan kjarasamning.

Nýr kjarasamningur Félags grunnskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga var undirritaður með rafrænum hætti hjá embætti ríkissáttasemjara síðdegis í gær. Gildistími hins nýja kjarasamnings er 1. janúar 2022 til 31. mars 2023.

Núgildandi kjarasamningur Félags grunnskólakennara  og Sambands íslenskra sveitarfélaga rennur út í dag, gamlársdag, og tekur nýi samningurinn við á nýársdag. Þetta er í annað sinn sem Félag grunnskólakennara og Samband íslenskra sveitarfélaga undirrita nýjan kjarasamning áður en gildandi samningur rennur út.

Nýr kjarasamningur fer nú í kynningu meðal félagsmanna Félags grunnskólakennara og hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, en niðurstaða atkvæðagreiðslu um samninginn mun liggja fyrir þann 14. janúar 2022.

Félag grunnskólakennara

Samband íslenskra sveitarfélaga