Frestur vegna jafnlaunavottunar framlengdur um ár

Fresturinn hefur verið framlengdur til 31. desember 2019. Tekur til allra fyrirtækja og stofnana, óháð stærð þeirra, að þeim aðilum undanskildum sem eru að hálfu eða að meirihluta í eigu ríkisins og með 25 starfsmenn eða fleiri að jafnaði á ársgrundvelli.

Frestur þeirra fyrirtækja og stofnana sem höfðu frest fram að áramótum hefur þar með verið framlengdur til 31. desember 2019. 

Frestunin tekur til allra fyrirtækja og stofnana, óháð stærð þeirra, að þeim aðilum undanskildum sem eru að hálfu eða að meirihluta í eigu ríkisins og með 25 starfsmenn eða fleiri að jafnaði á ársgrundvelli.

Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra, hefur ákveðið að framlengja um 12 mánuði frest fyrirtækja og stofnana til að öðlast jafnlaunavottun samkvæmt ákvæðum laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Framlengingin tekur til fyrirtækja og stofnana, óháð stærð þeirra. Reglugerð ráðherra þessa efnis tók gildi í dag.

Reglugerðin felur í sér viðbótarákvæði við reglugerð nr. 1030/2017 um vottun á jafnlaunakerfum fyrirtækja og stofnana á grundvelli staðalsins ÍST 85. Með ákvörðun sinni nýtir ráðherra heimild sína til frestunar sem kveðið er á um í bráðabirgðaákvæði VI.

Framlengdur frestur nær þó ekki til allra. Aukinn frestur samkvæmt ákvörðun ráðherra nær ekki til opinberra stofnana, sjóða og fyrirtækja sem eru að hálfu eða að meiri hluta í eigu ríkisins með 25 starfsmenn eða fleiri að jafnaði á ársgrundvelli. Framantaldir aðilar skulu hafa öðlast vottun á jafnlaunakerfi og framkvæmd þess eigi síðar en 31. desember 2019.

Aukinn frestur nær heldur ekki til Stjórnarráðs Íslands sem skal hafa öðlast vottun eða staðfestingu á jafnlaunakerfi og framkvæmd þess samkvæmt lögum, eigi síðar en 31. desember 2018.

Ákvörðun ráðherra um aukinn frest, líkt og kveðið er á um í reglugerðinni sem tók gildi í dag, var tekin í samráði við helstu hagsmunaaðila.