Fræðsla um hinsegin málefni

Innviðaráðuneytið býður kjörnum fulltrúm í sveitarstjórnum og starfsfólki sveitarfélaga til fræðslufundar um hinsegin málefni.

Samtökin '78 sjá um fræðsluna en markmiðið er að auka þekkingu sveitarstjórnarfólks á réttindum og félagslegri stöðu hinsegin fólks. Fræðslan fer fram á fjarfundi (Teams) og í boði eru tvær tímasetningar:

  • Miðvikudagur 30. nóvember kl. 11:00
  • Fimmtudagur 1. desember kl. 11:00

Hinsegin fólk þarf að eiga greiða leið að þjónustu í sínu nærumhverfi. Þjónusta og viðmót á að vera laust við fordóma og mismunun en bein og óbein mismunun og útilokun getur stafað af þekkingarskorti þeirra sem þjónustuna veita. Til að bæta
stöðuna og draga úr fordómum og þekkingarskorti er mikilvægt að efla þekkingu kjörinna fulltrúa og starfsfólks sem sinnir þjónustu við almenning.

Fræðslan tekur um klukkustund og er opin öllum kjörnum sveitarstjórnarfulltrúum og starfsfólki sveitarfélaga.

Við hvetjum ykkur til að kynna viðburðinn meðal starfsfólks sveitarfélagsins og kjörinna sveitarstjórnarfulltrúa, ýmist á innri vef eða með því að áframsenda póstinn en í viðhengi er auglýsing um viðburðinn.