Fiskeldissjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2022

Sveitarfélög þar sem sjókvíeldi er stundað eru hvött til að sækja um styrk til sjóðsins

Mynd af vef Fiskeldissjóðs

Fiskeldissjóður starfar á grundvelli 7. gr. laga nr. 89/2019 um töku gjalds vegna fiskeldis í sjó og fiskeldissjóð. Sjóðnum er ætlað að veita sveitarfélögum styrki til uppbyggingar innviða, þar sem fiskeldi í sjókvíum er stundað, og styrkja þar með samfélög og stoðir atvinnulífs á þeim svæðum. Stjórn sjóðsins starfar eftir starfsreglum sjóðsins. Til úthlutunar á árinu 2022 eru kr. 185.100.000,-.

Við úthlutun styrkja úr sjóðnum er sérstaklega horft til verkefna sem snúa að:

  • a)         Styrkari samfélagsgerð (menntun, menning, íbúaþróun).
  • b)         Uppbyggingu innviða (atvinnulíf, þjónusta).
  • c)         Loftslagsmarkmiðum og umhverfisvernd (fráveita, orkuskipti, vatnsveita).
  • d)         Tengingu við sjókvíaeldi (hafnir, aðstaða í landi).
  • e)         Nýsköpun hverskyns, tengd ofangreindum þáttum.

Sveitarfélög þar sem sjókvíeldi er stundað eru hvött til að sækja um styrk til sjóðsins og kynna sér þær reglur sem um það gilda, sérstaklega úthlutunarreglur sjóðsins, sem eru aðgengilegar hér að neðan.

Til að umsókn teljist fullnægjandi skal henni fylgja:

  • Lýsing á markmiðum verkefnisins
  • Ítarleg og sundurliðuð framkvæmdar- og kostnaðaráætlun um þá verkþætti eða verkefni sem sótt er um styrk til.

Opnað var fyrir umsóknir 18. febrúar 2022 og er umsóknarfrestur til kl. 16:00 25.mars. 

Umsóknum skal skilað rafrænt í gegnum eyðublaðavef Stjórnarráðsins á slóðinni https://minarsidur.stjr.is.