FG hafnar Lífskjarasamningi og slítur kjaraviðræðum

Í morgun sleit Félag grunnskólakennara kjaraviðræðum við Samband íslenskra sveitarfélaga, en kjarasamningur aðila rennur út um næstu áramót.

Í morgun sleit Félag grunnskólakennara kjaraviðræðum við Samband íslenskra sveitarfélaga, en kjarasamningur aðila rennur út um næstu áramót.

Samband íslenskra sveitarfélaga hefur lagt fram tilboð á grunni Lífskjarasamnings er gildir frá 1. janúar 2022 til 31. mars 2023. Tilboðið er í samræmi við þá samninga sem Samband íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborg hafa þegar gert við aðra viðsemjendur sína.

Samkvæmt tilboðinu hækka laun kennara um 25.000 kr. frá 1. janúar 2022 og vinnutími styttist með sama hætti og þegar hefur verið samið um við aðra opinbera starfsmenn í dagvinnu.

Krafa grunnskólakennara varðandi styttingu vinnutíma er að stytta kennslu hvers kennara um eina viku á ári þ.e. úr 37 vikum í 36 vikur. Ljóst er að slíkt myndi auka enn á þann mönnunarvanda sem grunnskólar standa nú þegar frammi fyrir og leiða til mikils kostnaðarauka. Forsendur styttingar dagvinnutíma á opinberum vinnumarkaði eru að hún leiði ekki til þjónustuskerðingar eða aukins kostnaðar.

Jafnframt er deilt um sveigjanlegt vinnuumhverfi kennara og viðveru á vinnustað auk annarra krafna sem valda kostnaðarauka langt út fyrir ramma Lífskjarasamningsins.