Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Aski – mannvirkjarannsóknasjóði

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Aski – mannvirkjarannsóknasjóði fyrir þriðja styrkár sjóðsins, styrkárið 2023.

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Aski – mannvirkjarannsóknasjóði fyrir þriðja styrkár sjóðsins, styrkárið 2023.

Sjóðurinn er í eigu innviðaráðuneytisins og háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins. Hann veitir styrki til mannvirkjarannsókna með áherslu á aukna þekkingu, umbætur og nýsköpun til að mæta samfélagslegum áskorunum á sviði mannvirkjagerðar.

Leitast er við að opna opinbert styrkjaumhverfi fyrir fleiri aðila úr háskólasamfélagi og atvinnulífi og einnig að stuðla að auknu samstarfi við erlenda rannsóknaraðila.

Áhersluflokkar 2023

  • Byggingargallar, raki og mygla
  • Byggingarefni
  • Orkunýting og losun
  • Tækninýjungar
  • Gæði

Umsóknarfrestur er til og með 31. október 2023

Sótt er um á vefsíðu Asksins, www.hms.is/askur en þar eru einnig starfsreglur og kynning á sjóðnum, áherslum ársins og þeim gæðaviðmiðunum sem eru lögð til grundvallar við mat fagráðs á umsóknum. Hægt er að senda tölvupóst á netfangið askur@hms.is til að fá frekari upplýsingar.