Afhending Íslensku menntaverðlaunanna 2022

Afhending Íslensku menntaverðlaunanna fór fram á Bessastöðum og var sjónvarpað frá athöfninni á RÚV fimmtudaginn 3. nóvember sl.

Frá afhendingu Íslensku menntaverðlaunanna 2022.

Íslensku menntarverðlaunin voru stofnuð til að auka veg menntaumbótastarfs og vekja athygli á því góða og metnaðarfulla starfi sem unnið er í skólum og frístundastarfi.

Verðlaunin voru veitt í fjórum aðalflokkum auk hvatningarverðlauna.  Var þetta í fyrsta skipti sem veitt voru verðlaun fyrir framúrskarandi iðn- og verkmenntun.

  • Verðlaun fyrir framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur hlýtur Leikskólinn Rauðhóll í Reykavík fyrir fagmennsku og gæði í leikskólastarfi og öflugt þróunarstarf.
  • Verðlaun fyrir framúrskarandi þróunarverkefni hlýtur þróunarverkefnið Átthagafræði í Grunnskóla Snæfellsbæjar en það beinist að því að efla jákvæð og virk tengsl skóla og samfélags, þekkingu nemenda á heimabyggð sinni og auka fjölbreytni í námi.
  • Verðlaun fyrir framúrskarandi iðn- eða verkmenntun fær Tækniskólinn fyrir átaksverkefnið #kvennastarf sem unnið hefur verið á hans vegum í samvinnu við aðra iðn- og verkmenntaskóla og beinst hefur að því að vekja athygli á fjölbreyttum störfum í iðn-, tækni- og verkgreinum og benda á þann kynjamun sem hefur viðgengist í sumum starfsstéttum.
  • Hvatningarverðlaun Íslensku menntaverðlaunanna 2022 hlýtur Menntaskóli Borgarfjarðar fyrir framsækna endurskoðun á námskrá með það að leiðarljósi að búa nemendur sem best undir áskoranir í lífi og starfi í nútíð og framtíð.

Hægt er að sjá útsendinguna á spilara RÚV