Aðlögun Íslands að loftslagsbreytingum

Loftslagsráð boðar til ráðstefnu um aðlögun Íslands að loftslagsbreytingum á Grand Hóteli, fimmtudaginn 16. maí 2019 kl. 9:30 – 12:00.

Loftslagsráð boðar til ráðstefnu um aðlögun Íslands að loftslagsbreytingum á Grand hóteli, fimmtudaginn 16. maí 2019, kl. 9:30 – 12:00.

Markmið ráðstefnunnar er að kalla fram viðbrögð við fyrirsjáanlegum afleiðingum loftslagsbreytinga í þeim tilgangi að auka hæfni samfélagsins til að takast á við þær og byggja upp viðnámsþrótt.

Ljóst er að viðbrögð eru margþætt og því er nauðsynlegt að leiða saman krafta til að takast á við þau verkefni sem fyrir liggja.

Eftir hádegi fer fram vinnustofa þar sem farið verður dýpra í brýnustu verkefni og hindranir. Sætaframboð er takmarkað. Smelltu hér til að skrá þig á vinnustofuna.

Nauðsynlegt er að þátttakendur skrái sig í síðasta lagi þriðjudaginn 14. maí næstkomandi. Allir eru velkomnir en ráðuneytið vill þó vekja athygli á því að lokað verður fyrir skráningu fyrr ef fjöldi fer yfir það sem húsrúm leyfir. Þá verður einnig sent út beint streymi af ráðstefnunni.