Fara í aðalefni

Fjármál

Upp­færð­ar for­send­ur fjár­hags­áætl­ana

3. nóvember 2026

Forsendur fjárhagsáætlana 2027-2030 hafa verið uppfærðar á vef Sambandsins. 

Uppfærðar forsendur taka að mestu mið af þjóðhagsspá Seðlabanka Íslands frá því í ágúst. Á grunni þeirrar spár framlengir fjármála- og efnahagsráðuneytið spátímabilið og spáir fyrir um þróun útsvarsstofns sveitarfélaga. Þá er einnig stuðst við þjóðhagsspár greiningardeilda viðskiptabankanna, auk mannfjöldaspár Hagstofunnar og Byggðastofnunar. 

Spárnar gefa vísbendingar um skattheimtu og útgjaldaþróun sveitarfélaga á komandi árum. Ætlun Sambands íslenskra sveitarfélaga með minnisblaði um forsendur fjárhagsáætlana er að styðja við fjárhagsáætlunargerð sveitarfélaga en fjárhagsáætlun skal fylgja upplýsingar um þær forsendur sem byggt er á.  

Í minnisblaðinu er spátímabilið fimm ár (2027-2031) því samkvæmt nýjum sveitarstjórnarlögum sem liggja fyrir þinginu er lagt til að áætlanagerð sveitarfélaga nái til fimm ára. Frumvarpið hefur þó ekki verið afgreitt. 

Hér má finna uppfærðar forsendur fjárhagsáætlana.