Fara í aðalefni

Byggingamál

Fyr­ir­hug­að­ar breyt­ing­ar á bygg­ing­ar­eft­ir­liti

23. nóvember 2026

Drög að frumvarpi um breytingar á mannvirkjalögum hafa litið dagsins ljós. Í umsögn Sambandsins um drögin er lögð áhersla á skýra verkaskiptingu, tryggt aðgengi að eftirliti og mat á fjárhagslegum áhrifum á sveitarfélög. 

Frumvarpsdrögin fela í sér umfangsmiklar breytingar á mannvirkjalögum. Áhættuflokkun mannvirkja mun ráða leyfisskyldu og umfangi eftirlits, lögbundið byggingarstjórahlutverk fellur brott og skoðunarstofur fá aukið hlutverk við eftirlit í umboði HMS. Ytra eftirlit með mannvirkjum í áhættuflokki C verður á ábyrgð HMS fram að öryggisúttekt, en byggingarfulltrúar sinna áfram meðal annars leyfisveitingum, lokaúttektum og beitingu réttar- og þvingunarúrræða. 

Eftirlit og eftirfylgni haldist í hendur 

Sambandið bendir í umsögn sinni á að verkaskipting hafi verið skýrð frá áformastigi. Þó þurfi að afmarka betur ábyrgð á rannsókn frávika og eftirfylgni. Sveitarfélög verði jafnframt að hafa tryggan aðgang að nauðsynlegum gögnum í tengslum við hlutverk byggingarfulltrúa. Þá kallar Sambandið eftir skýrum viðmiðum um mismunandi flokka húsnæðis. 

Tryggja þurfi eftirlitsþjónustu um allt land þannig að staðsetning framkvæmda leiði hvorki til óeðlilegra tafa né óhæfilegs kostnaðar í dreifðari byggðum.  

Fjárhagsleg áhrif og innleiðing 

Sambandið leggur áherslu á að fjárhagsleg áhrif verði metin áður en frumvarpið verður lagt fyrir Alþingi. Horfa þurfi bæði til breyttra verkefna og tekna sveitarfélaga og kostnaðar þeirra vegna eigin framkvæmda.  

Breytingarnar eiga að taka gildi 1. júlí 2028. Sambandið telur mikilvægt að nægur tími gefist til undirbúnings, reglugerðarsetningar og vandaðrar innleiðingar og að áfram verði haft ríkulegt samráð við sveitarfélög um framkvæmdina. 

Hér má lesa umsögnina í heild sinni.