Byggðamál
Tryggja þarf hagsmuni sveitarfélaga við breytingar á byggðatengdum veiðiheimildum
17. nóvember 2026
Samband íslenskra sveitarfélaga hefur skilað inn umsögn um áform um frumvörp varðandi byggðatengdar veiðiheimildir.

Í umsögninni leggur Sambandið áherslu á að fyrirhugaðar breytingar á byggðatengdum veiðiheimildum verði byggðar á vönduðu áhrifamati og raunverulegu samráði við þau sveitarfélög sem breytingarnar snerta. Fyrirhuguð löggjöf getur haft veruleg áhrif á atvinnu- og byggðamál fjölmargra sveitarfélaga, sérstaklega á landsbyggðinni.
Heildstætt áhrifamat liggi fyrir
Breytingar á úthlutun aflaheimilda geta haft bein áhrif á sveitarfélög og hafnir sem nýta byggðatengdar veiðiheimildir í dag. Sambandið telur því mikilvægt að heildstætt áhrifamat liggi fyrir áður en frumvörp um breytingarnar verða lögð fram.
Á landsþingi Sambandsins í september var lögð rík áhersla á að ráðuneyti láti framkvæma fjárhagslegt áhrifamat vegna lagafrumvarpa, stjórnvaldsfyrirmæla og annarra stefnumarkandi ákvarðana ríkisins sem hafa áhrif á sveitarfélög.
Raunverulegt samráð
Sambandið leggur jafnframt áherslu á að haft verði náið og raunverulegt samráð við þau sveitarfélög sem verða fyrir mestum áhrifum af breytingunum, sem og Samtök sjávarútvegssveitarfélaga. Samráð þurfi að ganga lengra en að kalla eftir umsögnum í samráðsgátt stjórnvalda. Þá sé eðlilegt að lögfest sé sú skylda að við úthlutun sé haft formlegt samráð við viðkomandi sveitarstjórnir um úthlutun og skilyrði byggðakvóta svo staðbundin þekking nýtist sem best.
Sambandið leggur einnig áherslu á mikilvægi fyrirsjáanleika. Markmið í byggðamálum náist best með skýrum og stöðugum leikreglum til lengri tíma. Fyrirkomulag byggðatengdra veiðiheimilda þurfi því að tryggja sveitarfélögum, höfnum og atvinnulífi þann fyrirsjáanleika.
Hér má lesa umsögnina í heild sinni.