Fara í aðalefni

Stjórn Sam­bands­ins

Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga er kosin á næsta landsþingi sambandsins að afloknum sveitarstjórnarkosningum. Í stjórn eiga sæti ellefu aðilar sem öll hafa fengið kosningu í sveitarstjórn síns sveitarfélags. Formaður sambandsins er kjörinn sérstaklega. Við kjör í stjórn er landinu skipt upp í fimm kjörsvæði sem taka mið af skiptingu landsins í kjördæmi vegna Alþingiskosninga með þeirri undantekningu að Reykjavík er eitt kjörsvæði.

Formaður stjórnar er kjörinn í sérstakri kosningu. Almar Guðmundsson, tók við formennsku af Jóni Birni Hákonarsyni sem var kjörin formaður 2025-2026, en hann tók við af Heiðu Björgu Hilmisdóttur sem sagði af sér formennsku eftir að hún tók við sem borgarstjóri um áramótin 2024-2025.

Samband íslenskra sveitarfélaga var stofnað árið 1945.

Reykja­vík­ur­kjör­dæmi

Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir borgarfulltrúi

Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir, Reykjavíkurborg (D)

Varamaður: Bjarni Guðjónsson, Reykjavíkurborg (D)

Björg Magnúsdóttir borgarfulltrúi

Björg Magnúsdóttir, Reykjavíkurborg (C)

Varamaður: Róbert Ragnarsson, Reykjavíkurborg (C)

Pétur Hafliði Marteinsson borgarfulltrúi

Pétur Hafliði Marteinsson, Reykjavíkurborg (S)

Varamaður: Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir, Reykjavíkurborg (S)

Suð­vest­ur­kjör­dæmi

Almar Guðmundsson, Garðabær (D) - formaður

Varamaður: Ásdís Kristjánsdóttir, Kópavogsbær (D)

Hildur Rós Guðbjargardóttir, bæjarfulltrúi í Hafnarfirði

Hildur Rós Guðbjargardóttir, Hafnarfjarðarbær (S)

Varamaður: Sigurþóra Bergsdóttir, Seltjarnarnesbær (S)

Norð­vest­ur­kjör­dæmi

Auður Kjartansdóttir, bæjarfulltrúi í Snæfellsbæ

Auður Kjartansdóttir, Snæfellsbær (D)

Varamaður: Guðmundur Haukur Jakobsson, Húnabyggð (D)

Haukur Þór Hauksson, Borgarbyggð (M)

Varamaður: Hrafn Ágúst Björnsson, Akraneskaupsstaður (M)

Norð­aust­ur­kjör­dæmi

Ragnar Sigurðsson, bæjarfulltrúi í Fjarðabyggð

Ragnar Sigurðsson, Fjarðabyggð (D)

Varamaður: Berglind Harpa Svavarsdóttir, Múlaþing (D)

Sunna Hlín Jóhannesdóttir, bæjarfulltrúi á Akureyri

Sunna Hlín Jóhannesdóttir, Akureyrarbær, varaformaður (B)

Varamaður: Eysteinn H. Kristjánsson, Norðurþing (B)

Suð­ur­kjör­dæmi

Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri í Reykjanesbæ

Vilhjálmur Árnason, Reykjanesbær (D)

Varamaður: Jón Bjarnason, Hrunamannahreppur (D)

Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri á Hornafirði

Hjalti Þór Vignisson, Sveitarfélagið Hornafjörður (B)

Varamaður: Marta Rut Ólafsdóttir, Hveragerðisbær (B)

Stjórnarkjör

Kjörgengir í stjórn Sambandsins eru allir aðalmenn og varamenn í sveitarstjórnum sem og framkvæmdastjórar sveitarfélaga. Missi stjórnarmaður umboð til setu í stjórninni tekur varamaður sæti hans til næsta landsþings sem kýs nýjan aðalmann í hans stað. Láti aðal- eða varamaður í stjórn af starfi hjá því sveitarfélagi sem hann starfaði fyrir þegar kosning fór fram fellur umboð hans niður og á næsta landsþingi er kosinn stjórnarmaður í hans stað.

Stjórnin fer með yfirstjórn Sambandsins milli landsþinga, sem haldin eru árlega. Stjórnin er í forsvari fyrir Sambandið út á við og ber ábyrgð á fjárreiðum þess. Stjórnin heldur fundi að jafnaði tvisvar í mánuði.

Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga er kjörin til fjögurra ára á landsþingi að afloknum sveitarstjórnarkosningum.