Velferð
Kallar eftir skýrari ábyrgð og aðkomu heilbrigðiskerfisins
9. nóvember 2026
Samband íslenskra sveitarfélaga fagnar að hafin sé vinna við breytingar á lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018.

Má þar sérstaklega nefna löngu tímabæra lögfestingu SIS-mats og samræmdrar grunnskráningu. Sambandið gerir þó athugasemdir við ýmis atriði frumvarpsins og telur sumar tillögurnar ganga of langt gagnvart sjálfstjórn sveitarfélaga.
Ráðherra eigi ekki að geta þvingað fram samstarf
Í frumvarpinu er lagt til að lágmarksstærð þjónustusvæða verði 6.000 íbúar og að ráðherra geti við ákveðnar aðstæður mælt fyrir um samstarf sveitarfélaga.
Sambandið telur slíka heimild ráðherra ganga of langt gagnvart stjórnskipulegu sjálfstæði sveitarfélaga, enda séu þegar fyrir hendi úrræði til að bregðast við ef sveitarfélög uppfylla ekki lögbundnar skyldur sínar. Lagt er til að ákvæðið verði fellt brott eða endurskoðað í samráði við sveitarfélög.
Skýra þarf ábyrgð og aðkomu heilbrigðiskerfisins
Sambandið fagnar því að fyrirhugaðar breytingar geri sveitarfélögum kleift að skilgreina þá þjónustu sem þau hafa heimild til að sinna og bera ábyrgð á samkvæmt lögum hvað varðar einstaklinga í umfangsmikilli þjónustu fleiri en eins þjónustukerfis. Sambandið leggur þó áherslu á mikilvægi þess að tryggja raunverulega aðkomu heilbrigðiskerfisins og ábyrgðarskipting ríkis og sveitarfélaga gagnvart fólki með umfangsmiklar hjúkrunar- og öryggisþarfir verði skýrð. Sveitarfélög beri ábyrgð á félagsþjónustu en ríkið á heilbrigðisþjónustu.
Athugasemdir eru einnig gerðar við að einstaklingar sem sæta öryggisráðstöfunum samkvæmt dómsúrlausn fái sjálfkrafa forgang að félagslegu húsnæði. Sambandið telur eðlilegra að slíkar aðstæður vegi þungt í heildstæðu mati á þjónustuþörf, fremur en að skapa sjálfstæðan forgang á biðlista.
Þá telur Sambandið jafnframt að fyrirhugaðar breytingar muni hafa einhvern kostnaðarauka í för með sér fyrir sveitarfélög, s.s. hvað varðar bann við gjaldtöku fyrir frístundaþjónustu og innleiðingar- og stjórnsýslukostnaðar vegna stækkunar þjónustusvæða. Auk þess bendir Sambandið á að gildistökutíminn er fyrirhugaður 1. apríl 2027 sem gefur afar knappan tíma til innleiðingar.