Fara í aðalefni

Styrkir

Fjöl­breytt­ir mögu­leik­ar á styrkj­um fyr­ir sveit­ar­fé­lög

23. nóvember 2026

Sambandið hefur birt nýja vefsíðu um sjóðasókn og styrkjatækifæri með fjölbreyttum upplýsingum.

Sambandið hefur nú stóraukið það efni sem snýr að styrkjum og sjóðasókn á vef sínum.

Á vefsíðunni er nú að finna lista yfir innlenda, norræna og evrópska sjóði sem sveitarfélög get sótt í. Þar eru einnig að finna upplýsingar um þau verkefni sem Sambandið tekur þátt í sem samstarfsaðili og landstengiliður.

Á síðunni er einnig mikið safn leiðbeininga og hagnýtra ráða við allt frá umsóknum til uppgjöra, frá framsetningu upplýsinga til fjármála og frekari upplýsingar um þann stuðning sem Sambandið veitir á þessu sviði.

Við hvetjum öll til að skoða síðuna og bæði nýta þær upplýsingar sem þar er að finna sem og að láta vita ef þið saknið einhverra upplýsinga á þessu sviði.