
Forsendur fjárhagsáætlana
Samband íslenskra sveitarfélaga tekur reglulega saman minnisblað sem snýr að öllum helstu þáttum sem sveitarfélög þurfa að hafa í huga við fjárhagsáætlanagerð sína. Minnisblaðið í heild sinni má finna neðst á þessari vefsíðu.
Hér að neðan hafa helstu stærðir og forsendur áætlunargerðar fyrir árin 2027-2031 verið teknar saman með myndrænum hætti auk þess sem hlekkir á viðeigandi vefsíður með ítargögnum eru settir fram.
Við undirbúning fyrir fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir árin 2027-2031 hefur fjármála- og efnahagsráðuneytið uppfært spá um áætlaða þróun útsvarsstofns sveitarfélaga í heild. Áætlun ráðuneytisins grundvallast á spám um launaþróun og vinnumagn en einnig á innheimtu Fjársýslunnar hverju sinni.
Verðbólga
Illa hefur gengið að ná tökum á verðbólgunni á síðustu mánuðum og er hún enn yfir verðbólgumarkmiðum Seðlabanka Íslands.
Húsnæðisverð
Húsnæðisverðþróun styður við áætlunargerð í innheimtu fasteignaskatts og í sumum tilfellum fasteignagjalda sveitarfélaga. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) birtir um mitt ár fasteignmat næstkomandi árs en horfa þarf til spáa viðskiptabankanna ef áætla á tekjur sem taka mið af fasteignamati lengra fram í tímann. Spá viðskiptabankanna horfir til þróunar húsnæðisverðs á landinu öllu.
Mannfjöldaspár
Hagstofa birtir langtíma mannfjöldaspá og þrátt fyrir ýmsa óvissuþætti í henni (til lengri tíma) gefur hún mikilvægar vísbendingar um mannfjöldaþróun, ekki síst hvað yngstu og elstu aldurshópanna varðar. Byggðastofnun birtir mannfjöldaspá brotið niður á sveitarfélög en sú spá var birt í ársbyrjun 2024.
Framleiðsla stórra atvinnugreina
Útsvarstekjur sveitarfélaga geta verið háðar gangi tiltekinna atvinnugreina. Þá getur verið gagnlegt að horfa til spár um þróun mikilvægra atvinnugreina s.s. sjávarútvegs eða álframleiðslu.
Hafrannsóknarstofnun veitir stjórnvöldum veiðiráðgjöf um flesta helstu nytjastofna við Ísland á hverju fiskveiðiári. Ráðgjöf Hafrannsóknarstofnunar og greining hennar á stöðu helstu stofana má finna á vef stofnunarinnar.
Þá spáir Seðlabanki Íslands fyrir um útflutningsframleiðslu (magnaukningu) sjávarafurða og áls. Upplýsingarnar má setja í samhengi við vægi útflutningsgreinanna í launagreiðslum íbúa sveitarfélagsins á vef Hagstofu Íslands.
Sértækar forsendur áætlanagerðar
Taka þarf afstöðu til þess hvort aðlaga þurfi eftirfarandi spá um útsvarsþróun með tilliti til þróunar íbúafjölda og stöðu atvinnumála í tilteknu sveitarfélagi. Þá getur verið gagnlegt að glöggva sig á því hvernig greidd staðgreiðsla sveitarfélagsins hefur þróast m.v. landið allt en slíkan samanburð má finna á vef Sambandins.
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) hefur birt fasteignamat fyrir árið 2027. Það gildir í 12 mánuði frá og með 31. desember 2026. Lögum samkvæmt skal fasteignamat endurspegla gangverð fasteigna í febrúar á gildistökuári, nú febrúar 2026.
Tekjur jöfnunarsjóðs ráðast af skatttekjum ríkisins og útsvarsstofni sveitarfélaga. Framlög til einstakra sveitarfélaga ráðast af lögum og reglugerðum um sjóðinn. Áætlaðar úthlutanir úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga árið 2027 verða birtar á vef sjóðsins.
Laun og launatengd gjöld er að jafnaði stærsti einstaki útgjaldaliður sveitarfélaga svo mikilvægt er að líta til gildandi kjarasamninga launafólks sveitarfélaga. Árið 2024 voru fjögurra ára kjarasamningar undirritaðir á almennum markaði en ríki og sveitarfélög sömdu undir merkjum en samningarnir fela í sér prósentuhækkanir með krónutölugólfi og hafa það að markmiði að stuðla að minnkun verðbólgu og lækkun vaxta. Kjarasamningar við Kennarasamband Íslands (KÍ) voru frábrugðnir en þar var m.a. samið um virðismatsvegferð sem fól í sér innáborgun á árinu 2025 og varð kostnaður vegna kjarasamninganna þannig hærri þar en hjá öðrum bandalögum.
Kjarasamningar hafa verið undirritaðir við alla viðsemjendur sveitarfélaga og er gildistími samninganna til 31.mars 2028.



