Fara í aðalefni

Styrkir

Styrk­ir til að út­búa græn­ar fjár­fest­ingaráætlan­ir

31. ágúst 2026

Íslenskum sveitarfélögum stendur nú aftur til boða að sækja um fjárhagslegan og tæknilegan stuðning til að flýta fyrir fjárfestingum í sjálfbærri orku og loftslagsaðgerðum.

Verkefnið European City Facility hefur verið framlengt og tryggð fjármögnun upp á 11,1 milljón evra (u.þ.b. 1,5 milljarður ISK) til að styðja við 185 sveitarfélög sem hvert og eitt fær 60.000€ (8,5 milljón ISK), auk sérfræðiráðgjafar, til að útbúa fjárfestingaráætlun vegna verkefna sem flýta fyrir orkuskiptum. Auglýst verður þrisvar eftir umsóknum árin 2026 og 2027. Opnað verður næst fyrir umsóknir í október og hafa umsækjendur þá tvo mánuði til að skrifa og skila umsókn.

Verkefnið byggir á margra ára reynslu en nú þegar hafa rúmlega 400 sveitarfélög í Evrópu fengið stuðning við að þróa fjárfestingarhugmyndir fyrir aðgerðir sem stuðla að notkun á sjálfbærri orku og orkusparnaði. Þegar hafa þessar áætlanir skilað 1,8 milljarði evra í fjárfestingum (rúmlega 250 milljarðar ISK) en mun fleiri verkefni eru í farvatninu.

Samband íslenskra sveitarfélaga er einn samstarfsaðila í verkefninu og gegnir hlutverki landstengiliðs á Íslandi. Sambanið veitir umsækjendum og styrkþegum ráðgjöf og aðstoð í samstarfi við stjórnendur verkefnisins. Þegar hafa þrjú sveitarfélög á Íslandi hlotið styrki og stuðning í gegnum þetta verkefni.

Umsóknarferlið vegna næstu auglýsinga verður svipað því sem áður hefur verið en við bætist að nú verður hægt að sækja um styrki vegna verkefna sem snúa að því að kæla eða hita húsnæði í viðbót við aðgerðir sem snúa að því að bæta orkunýtingu eða skipta úr jarðefnaeldsneyti í hreina orku. Auk þess hefur þeim löndum fjölgað sem geta sótt um þessa styrki og eru þau nú 32.

Auglýst verður sérstaklega á næstu vikum hvaða dag opnað verður fyrir umsóknir, hvenær skilafrestur þeirra verður og hvenær haldinn verður kynningarfundur vegna þessa. Þangað til hvetjum við sveitarfélög til að skoða hvort ekki sé verkefni á döfinni sem notið gæti góðs af smá fjárhagslegum og faglegum stuðningi svo það verði að veruleika.

Frekari upplýsingar er að finna á vefsíðu Sambandsins: https://www.samband.is/verkefnin/althjodamal/european-city-facility-verkefni/