Fara í aðalefni

Hafnasamband Íslands

Jóna Árný kjör­in formað­ur Hafn­ar­sam­bands Ís­lands

23. október 2026

Jóna Árný Þórðardóttir, bæjar- og hafnarstjóri Fjarðabyggðar, var kjörin formaður Hafnarsambands Íslands á ársþingi sambandsins sem lauk í dag. Hún er jafnframt fyrsta konan til að gegna embætti formanns Hafnarsambandsins. 

Jóna Árný Þórðardóttir, bæjar- og hafnarstjóri Fjarðabyggðar og Lúðvík Geirsson, hafnarstjóri Hafnarfjarðarhafna og fráfarandi formaður.

Jóna Árný kemur frá Norðfirði og hefur áralanga reynslu af stjórnun, rekstri og fjármálum. Hún er löggiltur endurskoðandi og starfaði sem ráðgjafi hjá KPMG á árunum 2005 til 2008. Þaðan lá leið hennar til Fjarðabyggðar þar sem hún gegndi starfi fjármálastjóra í tvö ár, áður en hún starfaði í innri endurskoðun hjá Alcoa Fjarðaáli. Hún rak síðar eigin ráðgjafarstarfsemi þar til hún tók við sem framkvæmdastjóri Austurbrúar árið 2014.  

Jóna Árný hefur gegnt starfi bæjar- og hafnarstjóra Fjarðabyggðar frá 1. apríl 2023 og hefur þar leitt umfangsmikil verkefni á sviði sveitarstjórnarmála, atvinnuþróunar og hafnareksturs. 

Jóna Árný tekur við af Lúðvíki Geirssyni, sem var formaður frá árinu 2020 og er hafnarstjóri Hafnarfjarðarhafna. Hafnarsamband Íslands er hagsmuna- og samstarfsvettvangur íslenskra sveitarfélaga sem reka hafnir. Sambandið vinnur að sameiginlegum hagsmunamálum hafna, stendur fyrir fræðslu og heldur reglulega þing og fundi þar sem fjallað er um þróun hafnarmála og þær áskoranir og tækifæri sem hafnir landsins standa frammi fyrir.