Sambandið
Sambandið leggst gegn auknu úrskurðarvaldi ráðherra í skipulagsmálum
16. október 2026
Sambandið hefur skilað umsögn um drög að breytingum á skipulagslögum. Sambandið styður almennu markmiðin um einfaldari og skilvirkari málsmeðferð en leggst alfarið gegn tillögu um að ráðherra fái bindandi úrskurðarvald þegar ágreiningur kemur upp milli sveitarfélaga um breytingar á svæðisskipulagi.
Svæðisskipulag er sameiginleg skipulagsáætlun sveitarfélaga og getur haft bein áhrif á aðalskipulag þeirra. Sambandið telur því að tillagan feli í sér verulegt inngrip í skipulagsvald sveitarfélaga og sjálfstjórnarrétt þeirra. Í frumvarpsdrögunum sé jafnframt ekki sýnt nægilega fram á þann vanda sem breytingunni er ætlað að leysa eða hvort vægari úrræði gætu náð sama markmiði.
Skortur á samráði og mikilvæg atriði óljós
Sambandið gerir einnig verulegar athugasemdir við samráð við undirbúning frumvarpsins. Fyrri kynning málsins laut að breytingum vegna svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins en þar kom ekki fram að til stæði að breyta almennt málsmeðferð svæðisskipulagsnefnda eða veita ráðherra bindandi úrskurðarvald. Að mati Sambandsins hefði eðli breytinganna kallað á markvissara samráð við sveitarstjórnarstigið fyrr í ferlinu.
Þá telur Sambandið að ýmis mikilvæg atriði frumvarpsins séu of óljós og að of mikið sé lagt upp úr því að útfæra veigamikil atriði síðar í reglugerð. Þegar um er að ræða valdmörk ríkis og sveitarfélaga og heimildir ríkisins til bindandi afskipta þurfi meginreglurnar að koma skýrt fram í lögum. Sambandið telur jafnframt óheppilegt að gera svo veigamiklar breytingar skömmu áður en fyrirhuguð heildarendurskoðun skipulagslaga hefst.
Sambandið tekur þó jákvætt í nokkrar aðrar breytingar, meðal annars styttingu lágmarksfresta, aukna notkun Skipulagsgáttar og breytingar sem miða að skilvirkari málsmeðferð. Einnig getur verið þörf á einfaldari leið til að fella úr gildi úrelt svæðisskipulag, en Sambandið leggur áherslu á að slík ákvörðun verði áfram á hendi sveitarfélaganna sjálfra.
Meginboðskapur umsagnarinnar er því skýr: Sambandið styður einföldun og aukna skilvirkni í skipulagsmálum, en slíkt má ekki leiða til óljósra valdmarka, aukinnar miðstýringar eða skerðingar á skipulagsvaldi sveitarfélaga.